10.10.2007 | 20:16
Fjörugur fundur :)
Það var heldur betur tekist á í dag hjá borgarstjórn. Svandís Svavarsdóttir lét ekki sitt eftir liggja, hún á engan sinn líkan þessi kona, er bara aldeilis frábær. Ég ber mikla virðingu fyrir henni. Það þarf einmitt svona manneskju til að halda vörð um hagsmuni okkar.
Það verður fróðlegt að vita hvort einhver sér sóma sinn í að segja af sér, er ekki komin tími á það í íslenskri pólitík að menn víkji þegar þeir brjóta af sér. Það þykir sjálfsagður hlutur í ýmsum nágrannalöndum okkar, löndum sem við gjarnan berum okkur við. Það hljóta að vera neikvæð skilaboð út í samfélagið ef fólk í opinberu stafi brýtur lög og reglur en situr áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.