Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja, svo margt leitar á hugann þessa dagana. Mér finnst eins og allt sé stopp. Almenningur kom loks út úr skápnum og lét til sín taka, en svo þegar þessi blessuð stjórn sem nú situr var sest á valdastól, var eins og allur máttur væri þorrinn úr fólki. Hvað veldur? Við erum ekki sjálfum okkur samkvæm ef við bara segjum já og amen núna. Það er langt í land og að mínu viti ekki komin í höfn öll þau áherslumál sem sett voru á oddinn. Við höfum jú náð vissum áfanga en megum ekki láta deigan síga og hætta þegar hæst lætur. Það verður að hamra járnið meðan það er heitt, það er nú bara þannig.
Ég horfði á viðtal Sigmars í kvöld við Davíð nokkurn Oddsson. Þetta var skondið viðtal, svo ekki sé meira sagt. Dabbi vill allt í einu að hugsað sé um litla manninn. Ætli það sé hinn sami litli maður og hann tjáði sig forðum um í viðtali varðandi mæðrastyrksnefnd, ellegar þá sem hafa notfært sér matargjafir. Þið verðið að fyrirgefa en mér er verulega misboðið þegar menn haga sér svona.Menn sem vita varla aura sinna tal og hafa margir hverjir aldrei þurft að hafa áhyggjur af að eiga til næstu máltíðar, eru að belgja sig út og gefa yfirlýsingar. Bara....fussum...svei.
Við verðum að opna augun og sjá hvað er að gerast hér í okkar fyrrum velferðarþjóðfélagi. Fjöldi manna hefur misst vinnuna sína og á varla til hnífs og skeiðar. þannig er það. Ég veit að það er ekki auðvelt fyrir þann sem vinnu hefur og getur framfleytt sér, þó naumt sé hjá mörgum, að setja sig í spor þeirra  sem enga von eygja og vita ekkert hvert þeir eig að snúa sér. Mér hefur þessa dagana verið hugsað til þorpanna úti á landi þar sem mannlegu samskiptin eru meiri og öll persónuleg þjónusta einnig. Nú er ég kannski að alhæfa, en ég er líka að tala af eigin reynslu.
Ef við viljum breytingu þá er lag, NÚNA. Ég, persónulega er orðin örþreytt á flokkræði liðinna ára og horfi því með von til stjórnlagaþings og þeirra breytinga sem að það gæti áorkað.
"Hvað tefur þig bróðir"
Hó..hó....hó.
Hvar erum við stödd. Þessi  litla þjóð sem hjarir hér rétt sunnan við  norðurheimskautsbaug?
Bandaríkjamenn eru nú loks búnir að opna sín augu til réttlætis og blökkumaðurinn Obama  réttkjörinn forseti. glæsilet. Ekki annað hægt að segja.
Við hins vegar sitjum hér á hjaranum og grátbiðjum um lýðræði, en er hafnað.Halló.....Halló... Hvað er í gangi ?
Erum við ekki þjóðin sem allt getur, allt veit og hefur lausn á öllum heimsins vanda ? Það segja ráðamenn okkar alltaf þegar þeir eru spurðir. Við reyndar líka.
Ég var við Alþingishúsið í dag, vitaskuld. Mín sannfæring og mín réttlætiskennd býður ekki uppá heimasetu.............nebb, ekki að ræða það. Ég er afskaplega glöð að eiga þennan kost að geta farið og mótmælt. Mótmælt öllu því déskotans siðleysi sem viðgengst hefur. íslenska þjóðin er búin að ganga með lokuð augun helst til lengi og  er ég þar ekki undanskilin. Augun okkar hafa  LOKS opnast og við viljum að á okkur sé hlustað. Við erum með her fólks í vinnu á þessu svokallaða "Alþingi" og það slær skollaeyrum við óskum okkar. Ef ríkisstjórnin ekki lætur segjast, þá á stjórnarandstaðan að sjá sóma sinn og víkja.Þeir eru nefnilega búnir að vera bullandi meðvirkir allan tímann. Með því einu að sitja.
Hvar í andsk..............er jafnaðarstefnan sem seld var  fólkinu fyrir síðustu kosningar. Hvar er  "Fagra Ísland"  Ef það fólk sem þetta seldi, sér ekki meinbugina,sér ekki frumhlaupið eða öllu heldur dómgreindarleysið í sölunni. Þá er eitthvað MIKIÐ AÐ........og þá meina ég MIKIÐ.
Það er umhugsunarefni, hvort sitjandi fulltrúar á Alþingi þar með taldir ráðherrar, séu á einhvern hátt persónulega flæktir í "HRUNIÐ" ...............Hvað á maður að halda??????
Það væri nú gaman ef rannsakað yrði  heilabú þeirra sem í ríkisstjórn sitja nú,  þar eru að koma fram afar sérkennilegir  þættir  sem eru sannarlega rannsóknarverðir. Kannski eitthvað fyrir KÁRA.
Ég er búin  að standa vaktina frá fyrsta degi. Það eru orðnar ansi margar vikur skal ég ykkur segja. Það sem ég fer fram á er ofureinfalt.
Stofnun nýs lýðræðis og ritun nýrrar stjórnarskrár.
Fleira var það nú ekki í þetta sinnið :)
Ég er harmi slegin efir þeirri skelfingu sem nú ríður yfir Gaza. Þetta er ekkert annað en slátrun, útrýming þjóðar. Ég skammast mín fyrir að land mitt skuli hafa stutt  stofnun Ísraelsríkis á sínum tíma, en það er búið og gert, en ég bara trúi ekki öðru en hver heilvita maður sem vill hugsa sjái og geri sér grein fyrir því sem þarna á sér stað. Við eigum ekki að halda tengslum við ríki sem virðir engin mannréttindi og murkar líf úr börnum sem og öðrum. Ég held við ættum að hugsa okkur hvernig það væri ef börnin okkar gætu ekki leikið sér frjáls úti, alltaf væri hætta á sprengjuregni. Það fólk sem þarna býr veit aldrei að morgni hvort öll fjölskyldan er saman komin að kveldi. Ég held já, að við í þessu alsnægta þjóðfélagi, ég segi alsnægta þjóðfélagi því miðað við alla þá skelfingu sem skekur nú Gaza og ýmsar aðrar þjóðir þá megum við vel við una. Ég er ekki að  tala um að við hættum okkar baráttu hér, sannarlega ekki. Við eigum að halda okkar striki og koma  frá öllu þessu spillta liði sem búið er að koma okkur í þá stöðu sem við nú erum í. Það breytir ekki því að þegar svo skelfilegir atburðir gerast í fjarlægu landi þá eigum við að nota allt það afl sem við eigum til að hjálpa. Við sem þjóð eigum ekki að vera vinir allra, eins og  t.d. Ísraels og Kína. Ég er  ósátt við stjórnmálatengsl við þessi ríki sem troða á mannréttindum. Þessi tvískinnungur sem er í orðum ráðamanna þar á meðal forsetans, valda mér velgju og ógeði. Þeir koma fram fyrir þjóðina og tala um virðingu, réttlæti og ekki má gleyma "mannréttindi" en hvað svo ? Þeir leggja land undir fót og fara í heimsóknir til  þessa BÖÐLA, vinsamlegir og ljúfir sem lamb, því þeir eru svo miklir VINIR. Oj bara, hvar er samviska þessa manna? eða eru þeir samviskulausir? Fjandinn sjálfur, ég get ekki annað sagt. Það er ekki að sjá, né heyra, að þeir geti með nokkru móti greint á milli hver er BÖÐULL og hver ekki. Við eigum ALLTAF að standa með þeim sem minna mega sín, ég tala nú ekki um þegar slátrun á fólki er orðin markviss aðgerð eins og nú gerist á Gaza. Ég  var á Lækjartorgi í dag þar sem komið var saman og mótmælt þessu blóðbaði Ísraela. Þar sá ég spjald sem á stóð "Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn" Þessar línur úr ljóði Kristjáns frá Djúpalæk, ljóði sem lifir með íslensku þjóðinni. Þar var það að vísu "djarfur" breskur dáti að verki, dáti sem "óvart" skaut litla palestínska stúlku i stað föður hennar. Þetta ljóð var lesið upp í kvöldfréttatíma á ruv í kjölfar fréttar sem lesin hafði verið í hádeginu. Þetta var eins og að tíminn færi til baka og ég hugsaði hversu stutt við erum komin í þroska að við skulum enn og aftur þurfa að koma saman og mótmæla slíkum hryðjuverkum.
Ég er sorgmædd og döpur fyrir hönd Palestínsku þjóðarinnar. Ég er samt glöð í hjartanu mínu að hún móðir mín skyldi kenna mér það í uppvextinum að ALLT kæmi okkur við, ALLIR væru jafnir hvar sem í heiminum væru og hvaða litarhátt þeir bæru.
Ég sendi hér með ákall til ykkar landar mínir. Knýjum á stjórnvöld að slíta öllu sambandi við  Ísrael og Kína.
Ég óska þjóðinni minni góðra og gleðiríkra áramóta og kjark til að standa með  sjálfri sér í baráttunni á komandi ári.
Það sem á undan er gengið í þjóðfélaginu á ekki sinn slíkan. Ég verð alltaf meira og meira skelfingu lostin eftir því sem dagarnir líða og fleira kemur í ljós um þá spillingu sem á sér stað í þjóðfélaginu. Ég hef velt því mikið fyrir mér, hvers vegna ríkisstjórnin hefur ekki tekið harðar á málum en raun ber vitni. Er þetta blessaða fólk bara ekki líka flækt á einhvern hátt inn í alla græðgina sem hér réð ríkjum, ekki kæmi það mér á óvart. Eitthvað veldur því að ekki er neitt aðhafst.
Ég hef staðið vaktina hvern laugardag til þessa ásamt öllum hinum, en nú hefur heldur betur fækkað á vellinum. Ég er SVO hrædd að uppgjöf eða þetta blessaða langlundargeð okkar sé að koma okkur í koll. Við MEGUM ekki gefast upp. Það verður "að halda sjó," eins og sagt er á sjómannamáli. Það er við ramman reip að draga, veit ég vel, en fjandinn sjálfur, við höfum allt að vinna, engu að tapa. Það er bara komin tími til að fólkið í landinu segi sitt og þess vegna taki af skarið. Við eigum ekki að láta bjóða okkur þá svívirðu sem þessi svokallaða ríkisstjórn býður okkur uppá. Þau eru að vinna sér tíma einhverra hluta vegna , það sýnist mér augljóst.
Þetta er bara "fólk" þarna inni á þingi, eins og ég og þú. Breyskir einstaklingar sem eiga  eflaust erfitt með að standast freistingar græðginnar, sem riðið hefur  Íslandinu okkar svo fantalega.
Ég held að vandinn okkar sé mikið  sá að við kunnum ekki að takast á við svoddan, sem nú ríður húsum, við kunnum ekki að mótmæla, við ÞORUM ekki.Fólkið sem staðið hefur vaktina BETUR  en við sem höldum okkur við þessi hefðbundnu mótmæli hvern laugardag,á heiður skilið. Það ÞORIR. Hvað sagði ekki Kvennalistinn á sínum tíma "Ég þori, get og vil" jahá, þannig var nú það.  Ég skal segja ykkur það að frá því fyrsta var mín trú að skipta yrði út í ÖLLUM  þeim áhrifa stöðum sem þessu tengist. Þetta er ekki flókið, ekki frá mínum bæjardyrum séð, EN, þegar maður hefur ekki hreinan skjöld og þarf að varðveita einhver "leyndarmál "þá er ekki hægt að "tækla"hlutina svona.
Ég segi bara BURT allt þetta SK'ITAPAKK. Þið hafið ekki þá dómgreind til að bera sem hæfir stjórnendum landsins okkar. Svo einfalt er það nú bara.
Nú eru jólin að bresta á :) sá yndislegi tími. Við megum samt ekki sofna á verðinum.
Hátíð ljóssins, í landi myrkursins sem yfir okkur grúir.
Ég óska ykkur góðra og friðsælla jól. Ég vona  að þjóðin mín láti af sínu langlundargeði og KREFJIST réttlætis , má þar nefna "kvótann" sem ég vil sjá til baka fenginn og er ósátt, að ekki skuli aðrir en hinn "frjálslyndi"  flokkur knýja þar á.
Ég ætla í öllum þessum róstum að taka mér rólega stund og lesa "Aðventu" Gunnars Gunnarssonar, í þriðja eða fjórða skiptið :) þetta er bara svo frábær þjóðleg saga, sem kemur manni til að "hugsa".
Gleðileg jól yndislegu landar.
Vonandi fjölmenna landar mínir á Austurvöll í dag vel dúðaðir. Vetur konungur hefur knúið dyra og kuldaboli  nartar væntanlega  í nef mótmælanda í dag.
Það er yndislega napurt, enda kominn nóvember og aldeilis tími til að fá aðeins snjó  Ég vona sannarlega að fjölmennt verði á "vellinum " eftir hádegið.
Við víkingar látum ekki kuldabola hræða okkur  nei, ó nei. Nú kemur íslenska ullin að góðum notum.
Hlakka til að sjá ykkur í dag.
Það er margt sem  herjar á hugann þessa daga. Ekki að undra, í slíku samfélagi sem við nú búum. Það er að vísu sama samfélagið, en önnur formerki ráða nú ríkjum. Það er eflaust  í bakkafullan lækinn að bera að tjá sig um það allt, sem nú skekur okkar blessaða samfélag. Blessað skal samt vera, að aðstandendur mótmæla að undan skuli vera búnir að slíðra sverð og ná samkomulagi, Það er vel.
Ég er ein af þessum þrákálfum, sem er ekki sátt við þann ráðahag sem hefur viðgengist. Ekki sátt við að þeir menn sem eru í vinnu hjá "okkur" hundsi rödd almennings, okkar sem sjáum þeim farborða. Það vill oft gleymast  þegar þessir ráðamenn eru teknir tali, hverjir sjá fyrir þeim :) elsku körlunum.
Lasse Tennander segir í  ljóði sínu "Draumurinn". "Og draumur minn er hreint sjálfsagður, þér sæmir best að trúa á það, því hann fjallar um réttinn til atvinnu og frelsis til að velja samastað"
Hann talar líka um dagheimilispláss, grænar grundir, þig og mig og sumarnótt og  um samfélagið þar sem "þú ert þú og ég er ég" og  við þorum að standa upp og segja "okkar barátta er sameiginleg"
Já,  þó langt sé um liðið  frá því þessi ágæti Lasse tjáði þessi orð, eiga þau við enn í dag. Það er nefnilega þannig að ýmis gildi eru eilíf,. Einmitt þessi einföldu, réttlátu, góðu gildi. Þessi gildi sem trúlega allir í hjarta sínu eru sammála um,  en láta svo gjarnan  glepjast af ........hvað eigum við að segja. Græðgi, skammsýni, fáfræði, stundargrunnhyggni. Ég  veit svo sem ekki hvað á að kalla okkur :(
Eitt veit ég, það eru  erfiðir tímar  framundan og við verðum að vera vel á verði. Áróðurinn er strax byrjaður hvað varðar stækkun álversins í Straumsvík. Ég kom við í verslunarmiðstöðinni Firði á leið heim úr vinnu i dag og það voru  þrír....þrír, aðilar sem gáfu sig á tal við mig til að falast eftir undirskrift varðandi stækkun álversins. Ég var verulega slegin. Ætlum við ekki að læra neitt af fenginni reynslu undangenginna ára, á bara að halda áfram sama ruglinu og sukkinu. Er það framtíðarsýn okkar að fjölga álverum og stækka þau sem fyrir eru. Selja orkuna okkar til þeirra á skítaprís (afsakið  slettuna)
Við höfum að mínu mati engan rétt til að planta niður álverum og virkjunum á þessu litla landi okkar. það eru  kynslóðir sem taka hér við og ég get lofað því að það er ekki í þeirra þágu að gera slíkt. Börnin okkar vilja ekki sjá landið sitt  þakið skógi raflína og hvern læk virkjaðan. Opnum augun. Við búum hér á lítilli eyju, paradís framtíðarinnar, ef við viljum :) Látum ekki stundargræðgi glepja okkur sýn. Viljum við ekki öll geta farið út í óspillta náttúru án þess að hafa girðingu raflína fyrir augum. Viljum við ekki líka  sjá ár okkar og læki renna óhindrað til sjávar  á sinn eina og sanna náttúrulega hátt.
Það er margt ákallið, en  Það ákall að passa upp á landið sitt verður aldrei of oft kveðið. Þetta land er í okkar umsjá og við eigum að skila því eins ósnortnu og við mögulega getum  til okkar afkomenda. "sem mest ósnortið" er ekki land sem er í klafa álvera, raflína og virkjana, það sér hver sá sem nennir að hugsa.
Ég óska ykkur landar mínir, alls hins besta og vona að sem flestir sem búa hér á suðvesturhorninu komi  í gönguna miklu:) sem fer frá Hlemmi kl. 14:00  Við búum í lýðræðisríki........er það ekki :)  það er sagt svo :)
Er það þetta gamla máltæki sem ráðamenn ríkisstjórnar og seðlabanka vilja hafa í heiðri þessa dagana.............eða hvað ? Það er með fádæmum að hlusta á þessa menn sem eru í forsvari, hversu loðmæltir þeir eru í svörum þegar innt er eftir aðgerðum í fjármálum landsins.Þar má nefna fjármálaráðherra og seðlabankastjórann Davíð Oddsson, en þeir tveir hafa verið sérlega lokaðir og loðnir í svörum hvað aðgerðir snertir.
Er þetta ekki eitthvað sem okkur kemur við eða hvað'? Við erum búin að bíða vikum og mánuðum saman eftir að eitthvað verði gert, en ekkert gerist. Landsmenn, þið verðið bara að bíða og halda ykkar ró!
Eiga þetta að kallast ábyrgir menn? Frá mínum bæjardyrum séð valda þeir   engan vegin þeirri ábyrgð sem þeim er ætlað að axla. Þetta er ekki þeirra einkamál, þetta er mál sem alla þjóðina varðar og við viljum fá svör, við viljum fá ábyrgar ákvarðanir. Hver dagur skiptir máli.
Það má vera að þetta ástand komi ekki við þá persónulega og því sé látið reka á reiðanum. Ef svo er þá þarf ábyrgari menn en  þessa til að "þora"að gera það sem gera þarf.
Það var frábært að vera niður á Arnarhóli í dag  og fylgjast með því þegar "silfurskotturnar" ( eins og einhver gárungi kallaði piltana) renndu í hlað á Gleðibílnum  Þvílíkt og annað eins.
það komu tár í augu og gæsahúð á kroppinn, þetta var svo glæsilegt og strákarnir okkar eiga það sannarlega skilið.
Ég verð nú að viðurkenna að ég átti ekki von á svona gífurlegu margmenni, en yndisleg tilfinning hversu mikil gleði  og stolt var  í þessum þúsundum manna við að  fagna þessum glæsilegu víkingum okkar.
Góð tilfinning og gott að vera íslendingur  í dag
Þið eru bestir og lang....lang flottastir
Sannarlega góðar fréttir að Paul Ramses fái mál sitt tekið til endurskoðunar, það gleður mig sannarlega. Hugur minn hefur oft reikað til hans og konu hans að undan og þeirrar aðstöðu sem þau eru í. Það getur víst enginn nema sá sem í þvílíkum sporum lendir, ímyndað sér þá skelfingu sem það er að þurfa að yfirgefa ættland sitt og geta jafnvel aldrei snúið til baka. Það gerir enginn að gamni sínu. Það eru því gleðitíðindi að hann skuli vera á leið til baka til Íslands, landsins í norðrinu þar sem barist var fyrir lýðræði hér í eina tíð. Baráttan sú losaði okkur við ok annarar þjóðar sem búin var að drottna of lengi, það ætti því að liggja í hlutarins eðli að þeir sem þessa eyju byggja geti að einhverju leiti sett sig í spor þeirra sem búa við kúgun og  óréttlæti. Ramses á sér stóran vina og stuðningshóp og það var einkar ánægjulegt að taka þátt í samstöðunni við Dómsmálaráðuneytið í sumar, einkum og sér í lagi þar sem það skilaði þessum góða árangri :)
"Strákarnir okkar" koma svo galvaskir á miðvikudag, þá verður sko gleði í hjörtum landsmanna, það er ekki spurning  þeir  voru SVO glæsilegir og baráttuglaðir. Það tók á að horfa á leikina, því er ekki að neita en, silfur............... er það ekki dásamlegt. Það var hlegið og grátið, tilfinningarnar báru fólk gjörsamlega ofurliði. Þannig á það líka að vera, lifa sig inn í leikinn og vera með  Spennufallið þegar þetta var svo búið var skrambi slæmt, ég tók á  það ráð að taka mér göngu í henni Krísuvík, aðeins að  ná mér niður. það var mjög gott að komast út í náttúruna og róa hugann.
Þeir eru  bestir og flottastir, það er ekki spurning
Áfram Ísland
Þá er hið íslenska sumar að renna sitt skeið enn eina ferðina. Mikið afskaplega er það nú stutt, ekki stór kvótinn sem við fáum hér norður í ballarhafi, en dásamlegt er það engu að síður. Ég búin að fara á bernskuslóðirnar og njóta þess sem best ég gat, var að vísu ekki fjallafær þetta sumarið en þvi er bara tekið sem hverju öðru hundsbiti og bæti úr því næsta sumar:) Það verður að segjast að sumarkvöldin á Austurlandi þetta árið voru dásamleg. Það var eins og segir í ljóðinu "Hér er kyrrð og hér er friður,hvíslar hljóður sjávarniður,haf og himinn faðma gullinn sólareld. Hér er fagurt íslenskt sumarkveld" Þessar litlu ljóðlínur hafa einhverra hluta vegna fest sér rúm í huganum mínum og koma gjarnan fram þegar  flakkað er um hið yndislega land okkar á sumrum.
Hún var góð tilfinningin fyrsta kvöldið þegar ég lagðist til svefns og gat hlustað á þögnina. Mikil er sú dásemd sem þögnin getur verið, ég get víst aldrei vanist borgarniðnum og er bara þokkalega sátt við það, mig langar ekki til að venjast honum því þá þætti mér ég ekki lengur vera ég sjálf. Það er eflaust skrýtið að segja svona, en þetta er tilfinningin mín.
Dagarnir á Borgarfirði, sér í lagi seinni ferðin mín þangað, voru hreint dásamlegir. Bræðslan að baki sem og verslunarm.helgi. (Það var samt verulega gaman báðar þær helga,hitti SVO marga og það var SVO skemmtilegt) Það var því rólegt í þorpinu og gott að rölta í miðnæturkyrrðinni niður á bryggju og hlusta á sjóinn gjálfra við fjörusteinana. Fuglinn ótrúlega spakur þar sem hann synti við bryggjuna, er ekki frá því að þar hafi m.a. verið teista á ferð. Ég er nú ekki sú besta að þekkja fugla en tel mig þó þekkja flest alla þá algengustu :) Hvað er yndislegra en fallegt sumarkvöld og það á bernskuslóðum, ég veit allavega ekkert sem getur toppað það:)
Bræðsluhelgin var verulega skemmtileg, við sem vorum í Steinholti borðuðum úti því blíðan var slík að ekki var annað hægt en vera úti. Gítarinn eða réttara sagt gítararnir, því þeir voru víst 3 á staðnum, voru dregnir fram og svo söng hver með sínu nefi hvort heldur voru gamlir slagarar, ástarljóð til Borgarfjarðar og enskir slagarar :) bara eins og það á að vera þegar fólk með þá breidd í aldri sem þarna var er saman komið :) Við  eldri krakkarnir gengum svo til Bræðslu þegar liðið var á tónleikana því okkur var í mun að hitta alla þá vini og kunningja sem við vissum að þarna  væru, ekki brást það heldur :) Það er svo skrýtið að þegar maður meðtekur svo margt á svo stuttum tíma þá tekur marga daga að vinna úr því :) púff :)
Þarna voru líka margir af "þekktum" andlitum þjóðar vorrar, einn þeirra var svo ljónheppin að hitta Steinholtsgengið þegar hann kom í fjörðinn. Þannig er að bensínsalan er við túnfótinn og  sá hinn blessaði maður fékk ekki við dæluna  tjónkað því hún tók bara kort :) hann sem notar eingöngu peninga :) kenjóttar þessar dælur :) við björguðum  því þessum ferðalangi og láðum honum kort svo hann kæmist nú leiðar sinnar. Við hittum hann svo niður við Bræðslu og var hann mikið þakklátur fyrir þessa björgun en fór svo örlítið útfyrir raunveruleikann og taldi sig komin með "stuðningsmenn" í pólitíkinni, eins og hann orðaði það. Það var réttilega leiðrétt á staðnum :) en þetta var skemmtilegt og  eins og annað, bætist í minninga safnið. Það var svo sprokað, sungið og dansað langt fram á nótt eins og siður er.
Ég fór svo í Hérað en aftur á Borgarfjörð því ekki  gat ekki látið fram hjá mér fara hagyrðingana góðu, þeir voru sérlega skemmtilegir ekki verður annað sagt. Andrés Björns, hann er BARA frábær. Ekki  að það hafi komið á óvart, nei aldeilis ekki, það er bara svo langt síðan ég hef hlustað á hann karlinn. Skemmtilegur dansleikur og farið á Hjallhólinn og sungið að dansleik loknum, ég gat að vísu ekki tekið mikinn þátt í söngnum þar sem bólguskratti hrjáði raddböndin mín :( en gaman var þó að sitja þarna í sumarnóttinni og hlusta á sönginn. Daginn eftir var svo stefna tekin á Svartaskóg, þar er alltaf "glaumur, grín og glens" við renndum því burt úr firðinum fagra um hádegi á laugardag  því heim ætluðum við að sækja í leiðinni frú Katrínu á Kirkjubæ (skólasystur úr ME) það gekk eftir þó á öðrum bæ fyndum hana. Hún hress að vanda, nema hvað! Við náðum svo í Brúarás um þrjú, dagskráin að vísu byrjuð en Jói (Jóhann Kristj. eftirherma) sagði það litlu skipta fyrir okkur þar sem hann væri ekki enn stigin á svið og við því ekki misst af neinu :) þarna voru utan hans Fúsi á Brekku, Aðalst. Ísfjörð, söngvaband og drengir tveir úr Fljótsdal  (tvíburar) að ég held, sem eru gífurlega góðir á nikku. skemmtileg dagskrá. Við ókum svo í Svartaskóg og reistum þar okkar bragga, tvö herbergi og stofa :) pússuðum og snurfursuðum okkur og fórum síðan á dansleik, sko EKTA harmonikkuball. Ég hef ekki farið á svona dansleik í nær 2o ár þetta var alveg geggjað, ég held að við höfum ekki setið einn einasta dans, það var bara dansað og dansað og dansað. Mér þótti alveg sérlega gaman að upplifa "alvöru" harmónikkudansleik og hvað það getur verið gaman.
Allt gott tekur enda hvað sem það heitir, hvort heldur sumar eða frí eða bara ........
S.s.sumar að baki en við tekur haustið með sinn sjarma :) hlý mjúk dimman svo ekki sé minnst á þetta hefðbundna sem fylgir haustinu eins og berjatínsla og sláturgerð :) Allar árstíðir með sitt sérkenni. Það styttist svo eftir það í jólin, þar á eftir er farið að telja niður til páska , nú þar á eftir er svo komið vor að nýju :)
Er þetta líf bara ekki dásamlegt :)+
Þegar ég kvaddi vini mína eftir skemmtilega afmælisveislu þann 18.s.l. sagðist ég ætla að taka með mér góða veðrið austur á land, því þangað var för minni heitið þann 20. Það er skemmst frá því að segja að þessi ósk mín rættist, er það ekki dásamlegt  þegar óskir rætast :) Ég er að vísu ekki alveg búin að snúa ofan af mér, veit ekki alveg hvernig á að slaka á og  þið vitið gera ekki neitt, kann það víst voða illa. Ég á framundan rúmar 3 vikur í slökun, púff, er ekki alveg að sjá þetta fyrir mér. Þar sem ég hef ekki "leyfi" á fjallgöngur sem stendur þá langar mig mest af öllu á fjöll, er  þetta ekki merkilegt hvað það togar í mann það sem ekki má, sama á hvaða aldri við erum  fyndið.
Þar sem ég hef ekki komið í" Fjörðinn fagra" svo óralegni á að sækja hann heim um helgina, fara á tónleikana í gömlu bræðslunni, sýna sig og sjá aðra. Eitthvert slangur er af ættingjum á svæðinu og það verður gaman sproka við það, grípa "gítarinn og gefa honum inn" eins og sagt var í einhverjum gömlum slagara héðan að austan
það er svo gaman þegar komið er á Borgarfjörð á sumrin, það úir og grúir af burt fluttum á öllum aldri, en allir geta dottið í gamla gírinn og klukkutímum saman er oft setið og sungið. Borgfirðingar eru einkar söngelskir og þegar sólin skín nær allan sólarhringinn þá er leitt að þurfa að sofa, mun skemmtilegra að sitja úti í miðnætursól og syngja. Þær eru margar minningarnar frá þannig stundum sem geymast í hugskotinu, það er svo dásamlegt.
Nú er ég að hugsa um að fara að "slaka á " þið vitið........er í fríi.
Þakka þér Árni fyrir að koma fram fyrir skjöldu og benda ráðamönnum okkar á  þessa brýnu nauðsyn. Vonandi hefur þetta útspil  þitt  eitthvað að segja, það er einfaldlega komin tími til að þeir sem ráða ríkjum og stjórna, staldri við á þeirri reið sem þeir eru og dytti að, í stað þess að ana áfram  að einhverju marki sem skiptir ekki máli. Það sem skiptir máli hvað þetta varðar er að það sé farið með fólk eins og "fólk" þarna er mikill munur á eins og þeir vita sem hafa þurft að dvelja  t.d. á þeirri deild sem Árni vitnar í.
Ég sjálf hef aðeins tjáð mig hvað varðar aðbúnað gamla fólksins okkar. Það virðist vera sama hvar borið er niður með þann málaflokk er lýtur að heilbrigðisþjónustu, alsstaðar komum við að því sama ................nefnilega því, að heilbrigðiskerfinu okkar hefur hrakað undangengin ár, svo um munar. Ég verð svo döpur þegar ég hugsa um það, að þjóðin mín, sem er svo framarlega á svo gífurlega mörgum sviðum skuli ekki hlúa betur að sjúku og öldruðu fólki en raun ber vitni. Við erum svolítið á bandarísku leiðinni, ekki er það nú gott. Þeir íslendingar sem búa í Bandaríkjunum  segja gjarnan  að gott sé að búa þar en, þar vilji þeir ekki verða gamlir. Nefnilega. Við getum svo sagt okkur hvernig heilbrigðiskerfið þar  er , allavega að hluta, í gegn um myndina hans Michael Moore.
Til viðmiðunar langar mig að  benda á, að frænka mín sem býr í Danmörku og vinnur við aðhlynningu gamla fólksins þar , segir að þar vilji hún  vera þegar hún verði gömul. Þetta segir mér ýmislegt. Þetta segir mér það að í Danmörku er  frekar hugsað um þarfir eldri borgara en gert er hér. Það fær að halda sinni reisn, sem er frumskilyrði hvers einstaklings og það sé borin virðing fyrir  þeirri kynslóð sem er að baki þess sem er.
Ég er kannski farin að rausa um sama hlutinn aftur og í mínum síðasta pistli, en ég held að þessi vísa verði ekki of oft kveðin. Þetta er einfaldlega hlutskipti okkar allra, það að verða gömul og hvaða veröld kjósum við þegar að þeim tímapunkti kemur.
Árni Tryggvason var maður að meiru að tjá sig opinberlega um þessi mál og ég vona að fleiri geri það í kjölfarið.
það er sko sannarlega kominn tími til að taka til á þessum bæ.
"það skal þú og þeim gjöra" Þannig hljómar hin svokallaða "gullna regla" sem er góð og gild. Mér dettur hún oft í hug þegar verið er að "ráðskast" með gamla fólkið okkar. Ég  veit ekki hvaða hvöt það er í íslenski samfélagi sem gerir það að verkum að gamla fólkinu er hent sitt á hvað og holað niður eftir einhverri hentistefnu þeirra sem ráða í það og það skiptið. Ég hef aldrei skilið, þegar verið er að flytja fólk sem komið er á efri ár, úr sínu umhverfi og því plantað niður eftir hentistefnu einhverra ráðamanna á þennan eða hinn staðinn. Það má vel vera að ég taki stórt upp í mig með þessa yfirlýsingu, en ég held þó að hún eigi fullan rétt á sér. Það er aumt til þess að vita í þjóðfélagi sem á ALLT, að þeir sem búnir eru að byggja grunninn að hluta þeirra velferðar sem við búum við, skuli vera fluttir það sem kallað var hér í eina tíð "hreppsflutninga" þannig er það nú samt, því annað er ekki hægt að kalla það.
Það á að vera krafa hvers einstaklings að hann fái að eyða síðustu æviárum sínum í sinni heimabyggð. Það myndi margur vandinn að baki ef svo væri. Í fyrsta lagi myndi þeim eldri borgurum sem þetta hlotnaðist líða mun betur og í öðru lagi myndu við þetta skapast störf sem er, jú, það sem vantar svo víða í litlum byggðarlögum á landsbyggðinni. Meðan ég bjó austur á landi, í litlu byggðarlagi þá ræddi ég þetta oft við oddvita þess samfélags, en það var ekki miklum skilningi að mæta þar. Mér hefur alltaf þótt þetta mikil skerðing á mannréttindum. Það þarf ekki annað en heimsækja það fólk sem á efri árum hefur verið hent inn í eitthvert ókunnugt samfélag og sjá og finna hvernig því líður. Er það þetta sem þeir óska sér, þeir sem ráskast með þessi mál. Ég hef nú grun um að svo sé ekki. Annað sem gamla fólkinu okkar er boðið upp á og það er, að  því er skákað inn á herbergi með "einhverjum" einstaklingi sem það oftátíðum getur engin samskipi haft við. Dæmi: Hvernig þætti okkur að vera í herbergi með einstaklingi sem hljóðar og kveinar tímunum saman, hvort heldu er á nóttu sem degi. Það sjá auðvitað allir að það er engum bjóðandi...............nema hvað, jú, gamla fólkinu okkar er boðið upp á þetta. Þetta er ljótt og þeir að misnota aðstöðu sína sem eru með völd og teljast með fulla sansa. Við vitum að margt af okkar gamla fólki hefur ekkert bein í nefi til að malda í móinn, þó að þeim sé höggvið. Það eru þeir sem eru í fullu fjöri, sem ættu að hafa skyn á að svona bjóðum við ekki þeim sem búnir eru að skila ævistarfi sínu.
Það er skrýtið að svona glæsileg þjóð sem er svo framarlega á mörgum sviðum og vill ætíð vera með "frontinn" fagrann og flottan skuli gleyma grunninum sínu, því hvað er gamla fólkið annað en grunnurinn okkar. Ég sé ekki betur en þeir sem byggja hús byrji á grunninum, það telst eðlilegt, án hans stæðu  þessi blessuð hús ekki.
Hvað erum við að hugsa.
Stjórnvöld guma af peningum í ríkissjóði "hallalaus rekstur sem meira að segja skilar arði" halló........til hvers í fjandanum þarf ríkissjóður að skila arði, eru þetta ekki peningar sem við eigum að nota til samfélagsins.
Sýnum gamla fólkinu okkar meiri virðingu, ekkert ykkar sem þetta les, óskar sér þegar aldurinn færist yfir, þess hlurskiptis sem stór hluti eldra fólks þarf og neyðist til að sætta sig við í dag.............árið 2008
Þetta er ljótt.
"Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík"  Það er yndislegt hversu margir hafa ort ástarljóð til landsins okkar dásamlega. Þó verið sé að vitna í vorkvöld í framangreindu ljóði þá komu mér þessar línur í hug í gær þar sem ég sat í flugvél á leið til Egilsstað. það var hinn fegursti morgunn, glampandi sólskin og það merlaði á snævi þakin fjöllin. Akrafjall og Skarðsheiði blöstu sannarlega við, en ekki sem fjólublár  draumur í þetta sinn eins og í ljóðinu góða, samt draumi líkust, svo hrein,kyrr og fögur. Það var sko draumi líkast að sjá landi úr lofti þennan dag, stafalogn, sólskin og svo bjart að sjá mátti norður yfir allt land
Snæfellsnesið var líka tignarlegt með hvíta snjóhulu og jökulinn prúða  trónandi á enda nessins, sem teygir sig út í Atlandshafið. Að sjá alla þessa fegurð fyllti mig gleði og stolti yfir þeirri auðlegð sem við eigum, svo mikla að mig langaði að gráta. Hún er svolítið skrýtin tilfinningin að langa að gráta af gleði, en kannski var það angi af sorg sem olli því að mig langaði að gráta við þessar aðstæður, sorg yfir því að til séu menn sem vilja eyðileggja þetta fagra sem við eigum, þeim sem taka auðinn fram fyrir það ósnortna. Það er í rauninni ekki skrýtið þó svoleiðis afstaða sé grátin.
Ég fylgdist hugfangin með snævi þöktu hálendinu á leiðinni austur, það var BARA magnað. Þegar við nálguðumst Austurlandið lá yfir því skýjabakki svo ég gluggaði í blöðin þar til Fljótsdalurinn birtist og öll ský á bak og burt   sól og blíða  tók því á móti mér . Dóttir mín hafði  það á orði að það væri einkennilegt hvað ég væri alltaf heppin með veður þegar ég flygi, innanlands sem utan, ég er víst alloft með draumkenndar lýsingar á þeirri fegurð sem fyrir augun ber  í mínum flugferðum  Já, það er nú nefnilega það  Ég ætla sannarlega að vona að ég verði áfram lánsöm með veður á mínum ferðum um loftin í framtíðinni, því ég er hreint og beint heilluð af þessum sjónarhóli landa.
Dvölin á Egilstöðum þessa helgi var hin bezta, var í góðu yfirlæti hjá dóttur minni og hennar fjölskyldu, fór meira að segja í blaðaútburð með henni Agnesi dótturdóttur minni í morgun, það var verulega gaman.  Sveitaþorpið var með rólegu yfirbragði, þrestirnir sungu sem mest þeir máttu því vorið er farið að bæra  á sér í loftinu, það brá m.a.s.fyrir  ropi í karra og túnin á Egilsstaðabýlinu voru kakkfull af gæs. Hún var því notaleg gangan okkar Agnesar með blaðagrindina í eftirdragi þennan sunnudagsmorgun
Kom með lungun full af sveitasúrefni til baka
Það er spennandi helgi framundan. Ég á leið austur á land úff hvað ég hlakka til. Það er ótrúlegt hvað landsbyggðahjartað slær hraðar þegar svona ferð er í augsýn. Það er nú ekki svo að um langa dvöl sé að ræða, tæpir tveir sólarhringar, en, það er hægt að hlaða sálarrafhlöðuna heljarinnar mikið á þeim tíma.
Það sem er svo heillandi við þetta litla land okkar er hversu gífurlegar andstæður (veðurfarslega) eru á ekki stærra skeri en raun ber vitni. Það er farið upp í flugvél hér syðra í marauðu og eftir tæplega klukkustundar flug lent á Egilstöðum eða Akureyri í kafaldssnjó. Mér þykir það alltf jafn skrýtið, þó svo ég sé búin að upplifa þetta "milljón" sinnum.
Núna eru einmitt svona aðstæður, allt marautt hér syðra en búið að kakka niður snjó á Egilsstöðum. Það verður dásamlegt að anda að sér sveitasúrefninu, það er einhvernvegin áhrifameira en borgarsúrefnið, ekki spurnig, svo kyrrðin á kvöldin, hún fyllir mann svo mikilli orku. Þessi sífelldi niður, allavega þar sem ég bý hleðst einhvernvegin upp í sálinni og veldur mér þreytu þegar til lengdar lætur. þessvegna finnst mér nauðsyn að komast út fyrir ysinn og þysinn með reglulegu millibili til að halda sálartetrinu í þokkalegu formi.
Ég er bara helsjúkur landsbyggðamaður sem fyrir misskilning lenti hér á mölinni og verð að bíta í það súra epli,en geri það besta úr því sem hægt er. Það er ekki svo erfitt, las Pollýönu á sínum tíma og smelli mér þá í þann gír þegar við á.............ekki flókið.